top of page
IMG_4925.JPG

Golfkennsla í hæsta gæðaflokki

IMG_4925.JPG

Skráning hafin - aðeins tvö laus pláss fyrir sumarið

Sumarþjálfun

Sumarið 2026 verður boðið upp á Sumarþjálfun frá maí til ágúst. Um er að ræða takmarkað prógram sem er hannað fyrir kylfinga sem vilja halda samfellu í þjálfun og fá reglulega leiðsögn yfir sumarið. Hugsunin er að þetta sé þjálfunarferli - ekki stakir kennslutímar. 

Markmiðið er að þú bætir þig sem kylfingur í heild sinni - bæði tæknilega, en ekki síður í ákvarðanatöku og leikskipulagi á vellinum. 

Sumarþjálfun felur í sér: 

  • 2*30 mínútna kennslutímar í mánuði (maí - ágúst)

  • Sveigjanleg bókun eða fastir tímar

  • Aðgangur að CoachNow fyrir endurgjöf á milli tíma

  • 9 holu spilakennsla einu sinni í sumar þar sem farið er yfir leikskipulag, ákvarðanatöku, kylfuval og hvernig við komum breyttri hugsun út á golfvöllinn. 

Hægt er að taka þátt sem einstaklingur eða sem par (2 saman)

Verð:

  • Einstaklingur: 30.000 kr per mánuð

  • Par / 2 saman: 40.000 kr per mánuð

Aðeins 20 pláss eru í boði þannig áhugasamir eru hvattir til þess að ganga frá skráningu sem allra fyrst. Skráning fer fram í tölvupósti á netfangið david@premiumgolf.is

CoachNow – þín eigin æfingaaðstaða á netinu

Allir kylfingar sem skrá sig í sumarþjálfun fá sitt eigið svæði á CoachNow, þar sem samskipti við kennara fara fram.

  • Myndbönd frá fyrri kennslutímum til hliðsjónar við eigin æfingar

  • Þú getur sent inn eigin myndbönd

  • Kennarinn svarar með endurgjöf og leiðbeiningum

About

Um Premiumgolf

PremiumGolf býður upp á golfkennslu í hæsta gæðaflokki. Allt kapp er lagt á að kennslan sé sniðin að þörfum nemandans og er kennslan því alltaf persónuleg og einstaklingsbundin. Markmið okkar er að gera þig að betri kylfingi til framtíðar. 

Við bjóðum upp á margvíslega þjónustu, allt frá stökum kennslutímum upp í þjálfun yfir lengri tímabil. Til að hámarka árangur mælum við alltaf með því að festa kennslutíma með reglulegu millibili. 

Fyrir nánari fyrirspurnir, hópakennslu eða námskeið fyrir fyrirtæki endilega hafið samband á premiumgolf@premiumgolf.is.

IMG_7225.JPG
bottom of page